Umsjón með heilsueflingu og mannfræðingar
Foto: Leger Uten Grenser/Rob Verrecchia
Umsjón með heilsueflingu og mannfræðingar
Umsjónarmenn með heilsueflingu hafa bein tengsl við samfélögin utan veggja sjúkrahúsa okkar.
Sem umsjónarmaður með heilsueflingu verður þú hluti af lækningateymi og berð ábyrgð á því að samræma upplýsingaflæði og fræðslu til stuðnings heilsueflingar. Sem dæmi má nefna: Kynningar á læknisþjónustu, þjálfun í hreinlæti, upplýsingar um málefni sem tengjast heilbrigði móður og barns, vannæringu, malaríu, alnæmi, ebólu o.s.frv. Þú gætir starfað við neyðaraðstæður (bólusetningarherferðir, vannæringu eða kóleru) eða starfað við verkefni til lengri tíma (HIV/alnæmi, berkla, malaríu o.s.frv.).
Umsjónarmenn Lækna án landamæra við heilsueflingu starfa við margs konar aðstæður:
- Neyðaraðstæður (náttúruhamfarir og af manna völdum).
- Langvinnt og stöðugt neyðarástand.
- Með útilokuðum og jaðarsettum hópum (þolendum kynferðisofbeldis, minnihlutahópum, innflytjendum o.s.frv.).
- Við samþættingu nýrra lækningaaðferða í rótgrónu fyrirkomulagi lækninga (HIV/alnæmi, berkar, lifrarbólga C, ebóla o.s.frv.)
Hæfni
- MA í mannfræði, félagsfræði eða heilsueflingu.
- 2. ára viðeigandi starfsreynsla, svo sem í heilsueflingu, heilbrigðisforvörnum, félagsráðgjöf eða samþættingu á mannafla.
Lengd verkefna
6 til 12 mánuðir