Læknir
Foto: Leger Uten Grenser / Alexis Huguet
Læknir
Þú færð not fyrir leiðtogahæfileika þína og stjórnunarkunnáttu þar sem þú gætir þurft að bera ábyrgð á stórum teymum innlents starfsfólks. Þú stendur þó ekki frammi fyrir þessum áskorunum án stuðnings, Læknar án landamæra veita tæknilega aðstoð sérfræðinga og reynds starfsfólks á vettvangi, þ.m.t. yfirgripsmiklar leiðbeiningar og starfsreglur.
Hæfni
- Þú þarft að uppfylla þau grunnskilyrði sem gilda um alla mögulega starfsmenn okkar á vettvangi.
- Lágmark tveggja ára viðeigandi starfsreynsla að námi loknu (þar með talin vinnuskylda kandídata).
- Klínísk reynsla af annað hvort lýðheilsumálum, fæðingarfræði / kvensjúkdómafræði, barnalækningum, næringu, bráðalyflækningum, smitsjúkdómum (þar með taldir kynsjúkdómar, HIV/alnæmi og berklar), heimilislækningum, svæfingum, gjörgæslu eða minniháttar skurðaðgerðum
- Hefur lokið námskeiði í hitabeltissjúkdómum
- sem viðurkennt er af Læknum án landamæra eða að lágmarki 1 árs nýtileg starfsreynsla frá hitabeltissvæðum.
- Geta til að vinna á vettvangi í að minnsta kosti 6 til 12 mánuði við fyrstu úthlutun vettvangsverkefnis. Undantekningar gilda fyrir kvensjúkdóma-, svæfinga- og skurðlækna.
- Fyrir barnalækna og lækna með reynslu af barnalækningum þá er beðið um að tilgreina vinsamlegast umfang reynslu þinnar af barnalækningum í umsókn.
Æskileg viðbótarhæfni
Við leitum að læknum sem hafa reynslu í einhverjum af þessum fagsviðum:
- Smitsjúkdómar (sérstaklega HIV / berklar)
- Barnalækningar (sjá hér að neðan)
- Kvensjúkdómar/fæðingafræði (sjá hér að neðan)
- Alþjóðleg lýðheilsa
- Heilsa flóttafólks
- Hitabeltissjúkdómar
- Önnur fagsvið: mismunandi þarfir
- Æskilegt er að hafa lokið sérfræðinámi, það er þó ekki skylda. Ef til vill verður spurt um mat á faglegri hæfni innan sérfræðigreinarinnar (hæfniseyðublað fyllt út)
Athugið
-
Það liggur í eðli starfa okkar að það er oft þörf fyrir bráðalækna í mjög krefjandi aðstæðum þar sem öryggi fólks er hugsanlega stefnt í mikla hættu.